top of page
doris wallpaper2.png

Velkomin

Við erum flutt í Hafnarfjörð!

 

Eftir farsæl ár í Skipholti höfum við fært okkur um set og erum staðsett à Borgahellu 13R í Hafnarfirði.

 

Hvað breytist?

Við höldum áfram að bjóða upp á framúrskarandi úrval af ljósum, ráðgjöf og lausnir í lýsingu. Erum með nýjan sýningarsal í breyttri mynd og einblýnum meira á netsölu. 

 

Hvað helst?

Sömu frábæru vörurnar, sama ástríðan fyrir góðri lýsingu og sami trausti hópurinn sem þú þekkir!

 

Komdu við hjá okkur í Borgahellu á miðvikudögum frá 13-17 (eða samkvæmt samkomulagi) og skoðaðu úrvalið inn á heimasíðu okkar eða hafðu samband fyrir ráðgjöf.

 

Við hlökkum til að taka á móti þér!

 

Lýsing og Hönnun – nýtt heimili, sami ljómi!

Nýjustu vörurnar okkar

About

Um okkur

 Lýsing og Hönnun var stofnað haustið 2007 og sérhæfum við okkur í ráðgjöf og hönnun í lýsingu, raflögnum og stýringum ásamt því að vera með mikið úrval af ljósum.

Við byggjum á margra ára reynslu í raflagna- og lýsingarhönnun ásamt hönnun,  forritun og uppsetningu á ljósa- og hitastýrikerfum fyrir einstaklinga og fyrirtæki
-í allar gerðir bygginga.

470406719_18478091167012637_1871419294866810890_n.jpg
Starfsmenn
bottom of page